Þetta er eiginlega smá könnun hérna. Eigið þið einhverjar uppáhalds vegamyndir (Road Movies)? Ég hef mikinn áhuga á þessari tegund kvikmynda og er að safna í smá gagnabanka öllum þeim vegamyndum sem ég man eftir, því miður er ég ekki komin með mjög margar enn sem komið er. Það skemmtilega við vegamyndir er hve fjölbreyttar þær eru, allt frá hádramatískum myndum yfir í cult hryllingsmyndir, þannig að það er af nógu að taka. Hvernig skilgreinið þið annars vegamyndir? Hvað þarf mynd að innihalda til að geta flokkast sem vegamynd að ykkar mati?