Þessi mynd er hrein snilld!! Ég fór á hana um daginn og hef ég aldrei farið á eins góða mynd með Samuel L. Jackson. Myndin fjallar um lyfjafræðing sem helgar líf sitt til þess að finna nýtt dóp sem er allt að 51 sinnum sterkara en venjulega. Þegar hann reynir að myrða yfimanninn sinn, leggur hann á flótta til Liverpool í Englandi til þess að reyna selja nýa dópið sitt. Þegar allt fer í vaskinn, eru allir á eftir honum. Löggur, leigumorðingi og gamli yfirmaðurinn vilja allir fá þetta dóp. En til þess að sjá meira, endilega farið á myndina og skemmtið ykkur vel.

Stjörugjöf: 4 af 5
kv. Sikker