Þessi mynd er nú ansi slöpp. Aðallega fyrir stráka að mínu mati. Ég veit varla af hverju ég var að fara á hana í bíó því Blade var svo hryllilega léleg. En annars finnst mér Wesley Snipes ömurlegur leikari og það á einnig við um Kris Kristofferson sem lék aðstoðarmann hans. Í myndinni þarf Blade að hjálpa fyrrverandi félugum sínum til að útrýma nýrri vampýrutegund sem eru á blóðveiðum í Prag. Tæknibrellurnar í myndinni eru hræðilegar en þær minntu mig á lélegan tölvuleik. Guillermo Del Toro leikstýrði myndinni og ég veit ekki hver skrifaði handritið. Allavegana mæli ég alls ekki með þessari mynd! Farið frekar á Crossroads, Ice Age eða einhverja sem er hægt að skemmta sér yfir en ekki svona ömurlegar myndir eins og þessa.

travel56