Góðan dag Hugarar.

Ég er að leita mér að einhverju málefni til þess að gera heimildarmynd um og mig langaði að vita hvað almúginn hefur áhuga á að sjá. Ein pæling var að fjalla um World Of Warcraft og líf þeirra sem spila hann m.a mitt líf. Önnur pæling var að fara í eins mörg trúfélög og ég mögulega get og fá hvert og eitt til að sannfæra mig um hvers vegna það trúarbragð er réttara en önnur. Svo datt mér nokkrar aðrar hugmyndir í hug en ég vil vita hvað þið viljið.

Endilega sendið mér línu hér á huga um hvað þið viljið sjá!

Með fyrirfram þökk
Dagu