Regnboginn við Hverfisgötu fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna. Kvikmyndahúsið verður opnað eftir gagngerar breytingar 15. september næstkomandi.

Opnunarmynd Bíó Paradísar verður tónleikamyndin Backyard eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson. Hún bar sigur úr býtum á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg í vor. Þá mun Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík taka húsið yfir í ellefu daga frá 23. september til og með 3. október. Nánar verður tilkynnt um dagskrána í septemberbyrjun.

Meira um þetta á pdf-inu
http://www.mbl.is/media/71/2271.pdf

Þetta er meganæs!