srsly hvað er málið með þessa mynd? hún er ekki svona góð, verð að segja að mér fannst hún ekki vera eitthvað merkileg eða groundbreaking, bara nokkuð venjuleg, alls ekki leiðinleg samt.

Kannski skildi ég hana ekki fullkomlega, það getur vel verið þar sem mér fannst oft á tíðum verið að fara fram og tilbaka óskipulega með hlutina og þannig.

Skil bara ekki æðið í kringum þessa mynd, það verður til dæmis seint sagt að þessi mynd sé eitthvað frumleg.

Og hvað varðar verk þessa hæfileikaríka leikstjóra þá fannst mér allavega TDK og Prestige alveg miklu betri, svo ég tali nú ekki um Memento.