Góðan dag kæru kvikmyndaáhugamenn.

Ég þarf að velja mér eina kvikmynd til þess að halda fyrirlestur um, og ég er í vanda staddur með að velja mér mynd. Uppáhalds myndirnar mínar eru Star Wars, LOTR, Shawshank Redemption, og einhverjar fleiri, en ég nenni ekki að gera fyrirlestur um þær. Allavega ekki um myndir sem eru í mörgum pörtum eins og Star Wars og LOTR.

Ég er kominn með 2 í huga, Gladiator og V for Vendetta og endilega þrykkið í mig eins mörgum myndum og þið mögulega getið.

Þakka fyrir mig.