ég var að horfa á the ruins áðan og mér fannst hún nokkuð góð. Mér fannst myndin vera eitthvað svo frumleg og sniðug. það kom til dæmis svo mikið á *SPOILER* óvart þegar að það kom í ljós að það hefði aldrei verið neinn sími ofan í grafhýsinu og myndin var svo taugatrekkjandi og hryllileg vegna þess að maður vissi að eitthvað væri að staðnum sem þau voru föst á en samt var maður ekki alveg viss.

hvað fannst ykkur um hana? fannst ykkur hún bara vera kjánaleg eða snilld?