Ég hef nýlega verið að horfa á margar gamlar myndir og einnig kom systir ´mín með einhverja nýja mynd sem ég man ekki einu sinni hvað heitir og ég sver að ein af þeim gömlu se3m ég hafði verið að horfa á og þessi sem systir mín kom með voru eins nema að önnur var svart/hvít og hin var í lit og ekki með sömu leikurunum…
Er það bara ég eða eru þessar nýju myndir bara ný útgáfa af þeim gömlu? Ekki það að það hafi verið neitt slæmt en það var bara undarlegt að sjá gamla “classic” mynd og síðan næstum sömu myndina bara í nýjum búningi. Mér þótti það bara fínt að hafa það á þessa vegu að geta yfir höfuð skilið það sem var verið að tala um í þeirri gömlu. Eru ekki einhverjar myndir sem þið væruð til í að sjá í nýjum búningi, ég veit að ég hefði ekkert á mótið því að sjá einhvað af gömlu góðu myndunum á þ´ða vegu sem maður getur skilið þær!!!
Have fun
Taran