Mér finnst mjólk góð með súkkulaði!
Mér finnst kók ekkert jafn gott með súkkulaði!

Og vitiði hvað það er gott að drekka mjólk með poppi??

Það er alltaf verið að segja manni að drekka minna gos, mö mö mö..
En ég meina þúst ef maður fer í bíó þá er ekkert hægt að kaupa tildæmis mjólk, MIG LANGAR Í MJÓLK MEÐ POPPINU MÍNU..

Þessi grein tengist kannski ekkert kvikmyndum, en hún tengist kvikmyndahúsum, mig langar að geta farið í bíó og keypt mér mjólk og popp…. ég vona að einhver bíóstjórnandi lesi þetta svo að það verði hægt að fá mjólk… bara mjólk í coke glasi og rör :) það yrði meira en yndislegt :))))

Ég vil samt ekki að það verði hætt að selja kók, ekki misskilja mig. Mig langar bara að bæta mjólkinni við! *nöldrinöldr*

Er einhver samála mér, eða er ég bara ein að baula eitthvað..mö