Jebb, var að lesa það að við gætum átt von á Indy fimm. Shia Labeuf lak því út úr sér óvart og Frank Marshall staðfesti. Það yrði sú síðasta (sem betur fer enda má ekki útvatna meira) enda Hr. Ford orðinn 67 ára. Allir gömlu gæjarnir munu standa að henni, meistari Lucas, meistari Spielberg og allir hinir.

Gerið ykkur þó engar falsvonir enda segir Marshall að þetta velti allt á handritinu.