ÉG fór á föstudags kvöldið útá leigu vegna þess að ekkert gott var í sjónvarpinu. Tveir vinir mínir voru búnir að mæla með þremur helvíti góðum stríðsmyndum sem voru ekki með þetta Jerry Bruckheimer þjóðrembukjaftæðisvæliviðbandaríkjamennerumbestiríöllu(eins og flestar stríðsmyndir eru.Þetta eru myndirnar Das Boot, Iron Cross og Wheels of terror, ég fór fyrst út á snæland en þeir áttu ekkert af þeim svo labbaði ég út á bónusvídeo og þeir áttu þær ekki heldur þannig að ég ætlaði að fá Braindead en hún var ekki til svo spurði ég um Bad Taste sem er mikið búið að mæla með hér á huga, en viti menn og grunaði ekki helvítis Gvendinn hún var ekki til þannig að ég hugsaði með mér,hvað er þetta með þessar videoleigur að eiga ekki þessar gæðamyndir ég sá allskonar rusl eins og Halloween H20, Pearl Harbor og svo einhverja óþekkta mynd með ömurlegasta leikara í heimi Eric Roberts, ég meina ef þeir eiga þessar myndir hans E.Roberts af hverju ekki þá Das Boot.

Endilega segið mér hvar ég get fundið þessar myndir og þá takið sérstaklega fram ef það er í Kópavogi.
Takk fyrir.
Þess má geta að ég er ekki kynþáttahatari, ég hata alla jafnt.