Ég var bara einmitt að pæla útí sum klísjé kvikmyndarmóment sem að eru svo ógeðslega venjuleg í myndum..

Það sem ég man sérstaklega eftir og finnst vera alveg ótrúlega pirrandi er þegar einhver hefur lent í slysi eða eitthvað, vaknar svo upp á spítala og rífur slöngurnar/leiðslurnar og draslið úr líkamanum og berst út úr spítalanum þrátt fyrir það að það séu fullt af hjúkrunarkonum að reyna að stoppa manninn.

Hvaða móment munið þið eftir sem að ykkur finnst vera ofnotað og gamalt?