Mig langaði bara að athuga hvort einhver hérna hefði séð myndina Jeepers Creepers? Ef svo er þá langaði mig að vita hvort einhverjum finndist vera eitthvað vit í henni?
Ég sá hana og þetta er alveg fáránlegasta mynd sem ég hef séð. Hún var alveg ógeðsleg á köflum en það var það eina , söguþráður og allt var ömurlegt og endirinn fannst mér alveg óskiljanlegur. Mig langar endilega að vita hvað öðrum fannst um hana!