Var að klára að horfa á þessa mynd og var bara að pæla hvort einhver af ykkur hafið séð hana og ef svo er: Hvernig fannst ykkur myndin?

Myndin er tekin upp að mestum hluta í einni stofu og snýst um samræður nokkurra prófessora í mismunandi fögum um það hvort að einhver maður gæti lifað í 14,000 ár og hvernig yrði hann.. spurningarnar sem vakna, þið verðið bara að horfa á hana =)

Ég held að ég hafi aldrei verið jafn, tja orðlaus eftir svona mynd og ég er ennþá að reyna að átta mig á þessu. En svona needless to say þá er þessi mynd alveg frábær fyrir þá sem geta dottið í smá heilaþjálfun og hún fer auðveldlega í top10 yfir bestu myndir sem ég hef séð :]

Discuss