Hæ, ég þarf smá hjálp hérna!
Ég er með einhver drasl DVD spilara í vélinni og notaði PowerDVD forritið sem fylgdi með. Ég er bæði með myndir úr Evrópska kerfinu og Ameríska! Ég var búinn að skipta yfir úr kerfum 5 sinnum og þá var það ekki hægt lengur og hann er fastur núna í ameríska kerfinu! Drasl PowerDVD!
Forritið býður ekki uppá fleyri enn 5 skipti!
Ég þarf eitthvað forrit til að geta skipt endalaust á milli! Getur einhver hjálpað mér?
Ég er með Windows XP Pro.

Kveðja
Svessi