Ég lét loksins verða af því að horfa á The Shining í kvöld, eftir að hafa heyrt mikið lof um hana og ég gerði mér miklar væntingar. Nema hvað, mér fannst hún ömurleg, það gerðist aldrei neitt í henni, og jésús konan sem lék Wendy, konu Jack Nicholsons, hún var ein ömurlegasta leikkona sem ég hef nokkurn tíma séð. Hún gjörsamlega eyðilagði allt saman, og hún við hliðiná stórleikara eins og Jack fannst mér vera algjör skömm.

Hvað finnst ykkur?