Ég horfði á The Shawshank Redemption í fyrsta skipti í gær - stórbrotið meistaraverk.
Ég horfi líka á Prison Break eins og svo margir aðrir, og fannst Michael alltaf svo geeðveikt svalur með sína kúl og yfirveguðu rödd og allt það.
En þessi rödd hjá honum er alveg eins og hjá Tim Robbins í The Shawshank Redemption! Og ég er ekki að tala um svona smá líkt heldur er Wentworth Miller bara bókstaflega að herma eftir Tim Robbins!

Fleiri hljóta að hafa tekið eftir þessu, og ég verð að segja að álit mitt á Wentworth Miller hefur farið svolítið mikið niður.