mbl.is
Leikarinn Paul Newman lést úr lungnakrabba á heimili sínu í dag, 83 ára að aldri.

Newman var margverðlaunaður, hafði verið tilnefndur tíu sinnum til Óskarsverðlauna á árunum 1959-2003 en hlaut þau aðeins einu sinni. Það var árið 1987 fyrir besta leik í aðalhlutverki í myndinni The Color of Money með Tom Cruise. Þá hlaut hann heiðursverðlaun Óskarsins árið 1986.

Newman hafði einnig verið tilnefndur, og unnið, til fjölmargra annarra verðlauna, t.a.m. Emmy og Golden Globe verðlauna og hinna bresku BAFTA verðlauna. Þá var hann valinn besti leikarinn árið 1995 á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir Nobody's Fool og svo má lengi telja.

Newman lék í sinni fyrstu kvikmynd árið 1954 en hún hét The Silver Chalice. Hann vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í myndinni Somebody Up There Likes Me en sló verulega í gegn á 7. áratugnum þegar hann lék í myndum á borð við The Hustler, The Prize, Hud, Cool Hand Luke og Butch Cassidy and the Sundance Kid.

Newman var giftur Joanne Woodward í nær 50 ár og eignuðust þau þrjú börn. Þar áður var hann giftur Jackie Witte og eignaðist einnig með henni þrjú börn.

:(