Á mánudaginn 21. júlí verður tvöföld forsýning á TDK, sem eflaust allir eru að slefa yfir þessa dagana.

Önnur sýningin verður í boði kvikmyndir.is og er hægt að vinna sér inn miða á næstu dögum með því að svara léttum spurningum. Á þeirri sýningu verða jafnframt í boði glaðningar svosem bolir ásamt öðrum varningi, og afhendist það við inngang inn í sal.

Síðan er Nexus forsýning á sama tíma (kl 22:20) og kostar 1700 kr. inn á hana. Miðarnir fást þar sem fyrr eingöngu í versluninni.
Einnig - eins og venjulega - verður sýningin hlélaus og textalaus.

Þá er bara að telja niður í þetta!