Mig langar bara að biðja fólk að ef það mætir getur ekki mætt á réttum tíma í bíó að sleppa því frekar. Það er fátt jafn óþolandi og þegar myndin er nýbyrjuð að það sé alltaf verið að opna helvítis hurðina og einhverjir fávitar koma inn og þurfa þá að sjálfsögðu að troðast inn í miðja röð þannig að allir þurfa að standa upp fyrir þeim. Svo ákveður annar fáviti að fara fram þegar fimm mínútur eru búnar af myndinni til þess að kaupa sér popp og kók og þarf þá að trufla alla aftur. Ég vill bara að það verði hætt að hleypa fólki inn svona seint og þannig minnka alla þessa truflun.