Jæja sælt veri fólkið.Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir frábæra síðu.
En mitt viðfangsefni er besta mynd sem gerð hefur verið, segi það og skrifa og hún er Forrest Gump.
Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá hana í fyrsta skipti þvílík snilld..vá ég hreinlega skalf og þegar ég gekk út úr bíóhöllini áttaði ég mig á því að það væri ekki hægt að gera betri mynd og 8 árum síðar og örruglega nokkur þúsund myndum þá er ég ennþá á þeirri skoðun að mín uppáhaldsmynd sé Forrest Gump.
Algjörlega lýtalaus mynd og ef einhver veit um einhvern galla á henni þá endilega láttu heyra í þér.