Ég er að leita af tveim kvikmyndum.

Ég man aðeins eitt atriði úr fyrri myndinni. En það er þannig að skeggjaður maður með úfið hár labbar í skógi þar sem allt er þakið snjó. Hann kemur að gömlum skólabíl eða eitthvað þannig liggur auður í snjónum. Maðurinn segir “Halló” en enginn svarar, svo prufar hann að opna vélina á bílnum og bílinn sjálfan. Man því miður ekkert fleira. Ahh held ég hafi áttað mig á því, giska á Into the Wild.


Seinni myndin held ég að eigi að gerist í framtíðinni, gæti verið hvar sem er en minnir mig á geimrannsókanarstofu. Ég er ekki sá sleypasti í enskunni né sá minnugasti en mig rámar í það að eitt samtalið úr myndinn hljómi eitthvað í þessa áttina:

Man in white jump suit: I have a very small emotional outburst sir
Man in black jump suit: Save to say it's over?
Yes, very save. (Dregur andann)I'm feeling much better.
Black man in black jump suit: Well then have a pleasent day.
Man in white jump suit: Thank you, you too, you both have a pleasent day.