Ég viðurkenni að ég hef ekkert heyrt um þessa mynd en imdb gefur henni 7.9, sem verður að teljast ágætt. Græna ljósið sýnir þessa mynd og er rétt að minna á að hún er sýnd án hlés, og er örlítið dýrari. Aðalpersóna hennar flytur í æskuheimilið sitt og stofnar munaðarleysingjahæli fyrir fötluð börn. Ekki líður á löngu þar til hún fer að hafa samskipti við ósýnilegann mann…