Þegar að ég var krakki horfði ég oft eina bíómynd sem ég verð að finna. Ég man ekki hvað hún heitir og ég var 4-5 ára þegar ég horfði á hana mest.

Hún var þannig að það var þessi hetja og í hvert skipti sem hann sá stjörnuhrap eða e-ð álíka, þá gat hann breytt sér í ýmislegt t.d í bíl í einu atriðinu sem ég man eftir. Og í enda atriðinu, þá var hann að bjarga tveimur krökkum frá vonda kallinum, þá breytti hann sé í eitthvað svaðalegt hvítt vélmenni og skaut eldflaugum í alla vondu kallana bjargaði deginum.

Þetta er það sem ég man úr myndinni og ég vona að einhver geti hjálpað mér að finna þessa mynd.
“Everything is so simple for you, either you don't understand it, or you don't care.