Hverjir eru nú búnir að sjá hana og hvernig fannst ykkur.
Mitt álit er að með Tim Burton sem leikstjóra og leikarana Johnny Depp, Helena Bonham Carter og Alan Rickman að þá væri hægt að gera meira. Ég satt að segja varð fyrir hálf vonbrigðum með skemmtanagildið í myndinni. Hló einu sinni eða tvisvar en það var allt. Lögin voru líka sum svo svakalega leiðinleg.
Góði parturinn við myndina var leikaravalið og myndin leit frábærlega út. Það var líklegast það besta við hana.
Annars held ég að hafi þetta ekki verið söngleikur að þá hefði þetta verið mun betri mynd.

Gef henni hinsvegar 7/10.
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”