Hér er ný íslensk mynd frá Baltasi Kormáki með Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlutverki. Ég verð að játa að ég veit bókstaflega *ekkert* um þessa mynd fyrir utan það sem ég var að lesa á netinu, þetta á víst að vera gamanmynd. Hilmir Snær leikur Jón, fráskildan mann en hann er nú að fara að giftast í annað sinn og það í Flatey. Síðan gerast líklega einhverjir skandalar.

Thumbs up eða down?