Jæja þá er árið 2007 liðið undir lok og nýtt ár gengið í garð. Árið 2007 var nokkuð viðburðaríkt í kvikmyndaheiminum og höfum við eflaust öll fylgst vel með því sem þar hefur átt sér stað.

Ég ætla mér ekki að fara ofan í sauma kvikmynda seinasta árs heldur ætla ég aðeins að þakka öllum þeim notendum sem hafa verið ötulir við að senda inn myndir, greinar, korka og skoðanakannanir, vegna þess að án þeirra væri þetta áhugamál dauðara en /blogg. Þrátt fyrir að við höfum fallið um nokkur sæti á flettinga listanum þá látum við það ekki á okkur fá og ákveðum bara hér og nú að árið 2008 verður besta ár okkar hér á /kvikmyndir.

Ég ætla að ljúka þessu hér, hafa þetta bara létt og laggott, gleðilegt nýtt ár, við stjórnendurnir þökkum það liðna og óskum ykkur farsæls komandi kvikmyndaárs.

kv. Liverpool, peturp og rfm