Vince Vaughn er kominn með nýja mynd, dömur mínar og herrar.

En núna virðist þetta vera kaldhæðin jólamynd þar sem Vaughn leikur bitran bróðir jólasveinsins sem kemur og heimsækir fjölskylduna sína á jólunum.

En hann Fred Claus skuldar víst bróðir sínum eitthvað og þarf að vinna fyrir skuldinni á Norðurpólnum sjálfum.

Það vill svo skemmtilega til að það skortir ekki fræga leikara í þessa mynd en sjálfur Paul Giamatti leikur jólasveininn. Ekki amalegt, það.

En dæmi um aðra fræga leikara eru Kathy Bates, Kevin Spacey, Rachel Weisz og Ludacris.

En sá síðastnefndi kom einmitt skemmtilega á óvart í Crash frá árinu 2005.

David Dobkin leikstýrir, en hann gerði einmitt Wedding Crashers með Vaughn árið 2005 og þar áður Shanghai Knights.

En nóg um það. Hvernig fannst ykkur myndin?