Ég hef lengi ætlað mér að sjá þessa mynd og lét mig hafa það í kvöld/nótt.

Ég bara trúi ekki að þessi handritshöfundar séu að drepa alla óvinina bara strax. Okay þetta eru kanski bíómyndir en ef mig minnir rétt frá teiknimyndunum/blöðunum þá voru þeir fangelsaðir og notaðir þegar þeir sluppu.

Mesta óvirðing sem ég hef séð er að drepa Green Goblin í svona ógeðslegri senu sem bara sýnir ekki þann karakter sem hann er.

Ætla vona að þeir fari ekki jafn illa með uppáhalds karakterinn minn hann Carnage.

Bætt við 5. október 2007 - 02:03
Nöldur lokið.. Varð bara að koma þessu frá mér.