Sæl öllsömul,

Eru einhverjir búnir að sjá Hitman - sýnishornin(trailers)? Ef svo er veit einhver um hvað verið var að tala um í sýnishornunum (gaurinn með djúpu röddina í nýja sýnishorninu)?

Það er eitthvað í þá áttina að “47” eigi að eyða öllu illu í heiminum (hefur einhver hérna kannski spilað leikina?).

Ganga leikirnir ekki bara út á það að hann sé bara leigumorðingi (og ekkert meira í rauninni)?

Ég er að vísu ekki búinn að ljúka við alla leikina, þannig að það gæti auðvitað verið eitthvað sem ég vissi ekkert um!!!!!

P.S. Mér hlakkar rosalega mikið þangað til að myndin kemur í kvikmyndahús!!!!!

Bless bless!!!!!!!!!!