Ég eins og líklega margir aðrir er ekkert rosalega hrifinn af þessu Hollywood rusli þó að þær myndir séu fínar stöku sinnum. En ég er bara í stökustu vandræðum með að finna búðir og videoleigur með bíómyndum á öðrum tungumálum en ensku t.d. og myndum sem eru öðruvísi, ef þið skiljið hvað ég meina.

Þannig að mig langaði bara að vita hvort að einhver hér viti um góða videoleigu eða bara búð sem selur svona myndir.

Ég veit ekki hvort þið fattið hvað ég meina, ég er bara hrifinn af myndum þar sem ekki allir eru fullkonnir í útliti og þar sem hasar er ekki í aðalhlutverki.Sem sagt ég vil sjá myndir sem sýna venjulegt fólk og eru ófyrirsjáanlegar og þar sem lagt er mikið uppúr persónusköpun og plotti. Og svo finnst mér alltaf jafn gaman að sjá myndir með erlendum tungumálum öðrum en ensku.
Myndir eins og Hip hip hora, the Spanish apartments, Good bye Lenin og Dot the i.

Einhver með hugmyndir af bíómyndum, videoleigum eða búðum? Skífan er með voða takmarkað magn af góðum myndum.