Fyrirgefið fáfræði mína, en hvernig í veröldinni gat mynd með snillingum á borð við Robin Williams, Dustin Hoffman, Maggie Smith, Bob Hoskins, Julia Roberts og leikstjóra myndarinnar Steven Spielberg mistekist svo mjög að hún endaði með alla þessa lélegu dóma.

Ég er auðvitað að tala um Hook. Það eru orðin mörg ár síðan að ég horfði á myndina síðast og var þetta ein af þeim myndum sem ég gat horft á aftur og aftur. En það var ekki fyrr en núna sem að ég rak augun í þennan frábæra lista leikara (og leikstjóra) og það gerði það að verkum að mig langar svolítið til að endurnýja kynnin við framhaldsmynd Pétur Pans.

Hvað segið þið um myndina? Er þetta bara léleg mynd sem nauðgar Pétur Pan ævintýrið eða er þetta gleymt meistaraverk?
Veni, vidi, vici!