Tekið af kvikmyndir.is

"Nú hefur Daniel Craig gefið í skyn að hann ætli sér ekki að halda áfram að leika Bond eftir næstu kvikmynd, en hann sagðist ekki vilja festast í spæjaramyndum.

Hann sagði enn fremur að það væri ekki peninganna vegna sem hann leikur í kvikmyndum svo það verður áhugavert að sjá hvernig hlutverk taka við hjá honum eftir að hann klárar Bond samningsskylduna.

Þá er bara einu eftir ósvarað. Hvaða leikari fær að taka við boltanum? Kvikmyndaspekúlantar munu eflaust geta skemmt sér ágætlega við að finna svarið við þeirra spurningu.




Hvað finnst ykkur um þetta?