Kalypsó dótið.

Af hverju? AF HVERJU!??!?!?

Þetta var svo tilgangslaust og flókið.

Þeir tóku gamla persónu og gerðu of mikilvæga með því að breyta forsögu hennar og gera að einhverskonar anda.

Þeir breyttu forsögu Jack með því að gera hann að ‘Pirate Lord’ sem var aðeins of ruglingslegt og asnalegt, sérstaklega þar sem enginn hafði minnst á það í fyrri myndum eða gefið til kynna á einn eða annan hátt.

Þeir gerðu myndina of asnalega. Zombie… ish sjóræningjar sem geta ekki dáið og risastórt sjávarskrímsli eru jú mjög skrýtnir hlutir. En guðlegur andi búinn til úr þúsundum krabba er aðeins of. Þetta fór frá “Skrýtið” yfir í “What… the FUCK - skrýtið?”.


Svo tóku þeir ótrúlegan tíma í að láta breyta henni aftur í Kalypsó og enn lengri tíma í umræðurnar sem tengdust þeim atburði.
Hvað gerðist svo? Hún flýði burt. Gerði ekkert. Og sjóræningjarnir héldu áfram að berjast eftir að hafa eytt hálf tíma í að lengja myndina og lítið meira.

Það eina sem Kalypsó gerði var að setja ský á himininn og - já - búa til hringiðu sem gæti hafa þjónað einhverjum smá tilgangi en gerði þó ekki. Hringiðan virkaði ekki á skip Davy Jones. Það eina sem hún gerði var að gleypa hann þegar hann datt frá borði. Þeir hefðu alveg getað breytt því yfir á að Davy hafi fuðrað upp eða eitthvað.

Svo: Algjörlega tilgangslaus hlutur sem dró myndina niður um a.m.k. eina stjörnu IMO.

Hvað segið þið?