Er þetta djók? Er fyrsti apríl? Er ég dauð? Því hvernig í anskotanum er hægt að gera kvikmynd um sims 2? Allavega þá ætla ég að trúa þessu ekki og bara skjóta á að þetta sé einhver að reyna að vera fyndinn því ég er ekki að sjá þetta gerast.
þori að veðja að myndin sé um venjulegan gaur sem á fjölskyldu og flott hús og svo í enda myndarinnar er fjölskyldan dáin, kviknað í húsinu og rekinn úr vinnuni og þá kemur feitt zoom-out í einhvern feitann gaur að spila Sims og hann segir: Hehe…
Það væri nú alveg þess virði að gera þessa mynd ef að það kæmi atriði þar sem öll fjölskyldan færi í sund í nýju sundlauginni við húsið. Svo kæmi einhver djókari og myndi fjarlægja stigann(eins og hægt var að gera í sims 1) og allir myndu deyja og þá kæmi allt í einu legsteinar við sundlaugarbarminn.
Hehe, ef þetta væri ekki epic climax endir í kvikmynd þá veit ég ekki hvað er.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..