Með hugsanlegum *SPOILER*

Skellti mér á kvikmyndina ‘Zodiac’ í gær sem var að mig minnir heilir 3 tímar að lengd. Að mínu mati hefði myndin getað verið búin þegar um hálftími var liðinn þegar *SPOILER* þeir voru gróflega búnir að finna út hver morðinginn væri.

Annars fannst mér þetta drullugóð og oft á tíðum frekar skuggaleg einsog þegar ‘Zodiac’ var að stinga gjelluna, sjaldan séð jafn raunverulegt atriði!

Vel var valið í hlutverk en mér fannst Jake Gyllenhaal eiga stórleik sem og John Carroll Lynch (Arthur Leigh).

En þið sem eruð búnir að sjá hana.. hvernig fýluðuð þið myndina?