Sir Charles Spencer Chaplin sem fæddist 16. apríl, 1889 og dó 25. desember 1977, best þekktur sem Charlie Chaplin, var leikari sem fæddur var á Bretland. Hann var einn frægasti leikari fyrstu Hollywood kvikmyndanna og einnig þekktur sem afbragðsgóður leikstjóri. Ein þekktasta persóna hans var „umrenningurinn“: heimilislaus maður með framkomu og mannasiði hefðarmanns, sem gengur um í kjólfatajakka, víðum buxum og of stórum skóm, kúluhatt, bambusstaf og með yfirvaraskegg. Chaplin var einn af mest skapandi persónuleikunum í þöglu myndunum. Auk þess að leika leikstýrði hann, skrifaði, framleiddi og fjármagnaði sínar eigin myndir. Chaplin kynntist leikhópum og leiksviði mjög ungur og snemma komu fram einstakir tjáningarhæfileikar (mime) hann ferðaðist víða uppúr 1900 með Fred Carno leikhópnum og 1913 gerði hann samning við Mack Sennet hjá Keystone kvikmyndafélaginu. Fljótt varð hann einn þekktasti skemmtikraftur heims og sá fyrsti til að sameina grín og drama á hvíta tjaldinu. Myndir eftir hann eru meðal annars The Kid sem var fyrsta myndin hans í fulllri lengt einnig voru myndirnar Gullnáman, Nútímin og Einærðisherrann mjög vinsælar.
Ef ég er ég og þú ert þú, Hver okkar er þá meiri hálfviti?