Hefur einhver séð þessa mynd?? Þetta er s.s mynd frá 2005, byggð á sögu H.P Lovecraft og tekin í stíl myndanna frá 1920, s.s með myndatökuvél frá þeim tíma. Langaði bara að vita hvort einhver hefði séð hana og gæti sagt hvort hún væri góð eða ekki, ég hef verið að ná í hana ólöglega á netinu, þar sem hún er víst ekki til á vídeóleigunum hérna, býst við að þar sem hún var ekki til í Vídeohöllinni, þá sé hún almennt bara ekki fáanleg hérna.

Var svona velta þessu fyrir mér þar sem ekki hef ég séð neinar myndir úr myndinni sjálfri og voða fáir hafa talað um hana, þar sem þetta er ekki þessi týpíska ,,Hollywood" mynd kom hún væntanlega ekki til landsins…
————–