Fór í fyrsta skiptið í Smára bíó um Helgina að sjá Joy Ride (fín mynd BTW) Ég hafði lesið um tæknilega örðuleika fyrstu vikuna en fjandinn hafi það, þessir nördar hafa ekki ennþá lært á græurnar. Þessi mynd átti að vera í THX en það var bara hljóð í hátölurunum bak við tjaldið, hvergi annars staðar. Ömurlegt. Ég er nokkuð viss um að hljóðið sé stór partur af myndinni í sambandi við andrúmsloft og spennu, en þessi vitleysingar í Bellinum klúðruðu þessu, það var betra sánd í þessu helvítis leiser showi.
Glatað en fínn salur þó.