Ég dustaði rykið af Forrest Gump í gær og horfði á hana, enda frábær mynd. Og ég var alveg búinn að gleyma hvað leikarinn sem lék unga Forrest gerði það vel. Þannig eftir myndina fór ég að kíkja á imdb.com og sjá hvað hann væri að gera í dag og þá sá ég að eina skiptið sem hann hefur komið fram í sjónvarpi er í Forrest Gump, hann lék sem sagt ekkert fyrir hana né eftir. Vitiði hvað varð um hann ?