Nú í kvöld verður The Number 23 heimsfrumsýnd. Sem mikill aðdáandi Jim Carrey get ég vart haldið í mér en þetta mun vera fyrsta spennumynd sem hann leikur í. Með honum í aðalhlutverki er Virginia Madsen (Sideways)en hún mun leika konuna hans. Hlutverk sonarins leikur svo hann Logan Lerman (Jack & Bobby).

Ef ég á að vera raunsær þá tel ég að þessi mynd verði ekki fyrir alla. Sumir sem hafa lítið vit á bíómyndum og hafa lítið kynnt sér þessa mynd eru að búast við eintómum bröndurum og sprelli hjá Carrey. Svona krakkar sem mæta bara í bíó til að fíflast og finnst skemmtilegast í hléum. Enn aðrir geta ekki séð hann fyrir sér í svona hlutverki og taka hann ekki alvarlega.

Ég sjálfur trúi því að hann eigi eftir að sýna glæsilega frammistöðu í þessari mynd og ef svo er þá er þetta ansi fjölhæfur leikari!

Hvað segið þið hugarar, eruð þið spenntir fyrir þessari og mynd og hvernig haldið þið að Jim Carrey standi sig í svona spennumynd?