Nú snýr hann aftur - “Disaster has a passport”.

Mr. Bean fer til Frakklands með myndbandstökuvélina sína og kemst fyrir einhverja regintilviljun í Cannes.

Talsetningin hefur (samkvæmt auglýsingum sem ég hef séð) ekki batnað síðan fyrir tíu árum, en stíllinn verður líklega sá sami.

Rowan Atkinson hefur þegar upplýst þá ákvörðun Mr. Bean teymisins að láta þetta heita lokaverkið í sögu þessarar frægustu (nánast) þöglu persónu samtímans.