Veit einhver hvar ég get nálgast þessa mynd?
Finn hana nefnilega ekki á video-leigunum og ekki heldur á torrent.

Kvikmyndakennarinn minn var nefnilega að segja okkur í dag frá þessari mynd og hún fjallar um ljósmyndara sem er á röltinu með myndavélina sína og tekur mynd af runnum og trjám eða einhverju.
Svo þegar hann fer heim til sín og skoðar allar myndirnar þá sér hann lík af smástelpu liggja innst inní runnunum sem hann tók ekki eftir þegar hann tók myndina.
Hann hleypur þangað á sama staðinn og hann tók myndina og sér að það er ekkert lík.

Þá er spurningin hvort það sé búið að færa líkið eða hvort þetta sé bara ímyndun í honum.

Kannast einhver við þessa mynd?