Ég sá trailerinn af þessari mynd og var ekki lengi að ákveða að hún væri ömurleg. Síðan átti vinur minn tvo frímiða í sambíóin sem voru að fara að renna út. eina myndin sem var mögurlega eitthvað varið í var Deja Vu. Hann bauð mér á hana og hún er GEÐVEIK
Soldið óraunveruleg en það skiptir ekki máli ef að myndin er góð. Hún er svo góð og þetta verður bara að koma fram að eini mögulegi gallin við myndina er trailerinn! Þetta tengist því ekki rassgat að leysa ráðgátuna á bakvið Deja Vu en maður skilur hvað er verið að meina með titlinum í lokin.

mæli hiklaust með öllu nema trailernum!