já það má með sanni segja að nú ríki neyðarástand. Ég fékk þessa mynd hjá félaga mínum að láni og það vill svo til að hann er búinn að þjösnast svo mikið með hana að hún er ónýt. Þetta er Special Edition af Liar Liar með 5.1 og DTS hljóði, og íslenskum texta ásamt einhverju meiru skemmtilegu. Ég finn þessa mynd samt sem áður hvergi á hinum íslenska DVD markaði og það liggur við að ég downloadi henni bara en þá fæ ég ekki DTS hljóðið né íslenska textan. Getur verið að einhver eigi þessa mynd eða viti um stað þar sem hægt er að kaupa hana með ofangreindum hlutum? Eða einhverja leið til að laga svona bilaða diska?
____________