Bara svona uppá djókið,

Var að gera jóla-tiltekt í vídeósafni mínu, henda dóti sem mig langar ekki að eiga o.s.frv.

Rakst á gamla “jólaklassík” í rykföllnu VHS-safninu: Silent Night, Deadly Night frá 1984.

Nú virðist vera að komast aftur í tísku að þýða titla, þannig að ég fór að íhuga hvernig þessi yrði best þýddur. Mér datt fyrst í hug Heims um ból, Hengingaról :D

En endilega komið með ykkar tillögur…
_______________________