Daginn!

Veit einhver hér hvar hægt er að kaupa DVD upptökutæki með hörðum diski á verðbilinu 30-40 þúsund.

Ég hef notað Packard Bell EHR2080 tæki sem er með innbyggðum 80GB hörðum diski. Þetta tæki var til í Elko á 34.990 en er uppselt og kemur ekki aftur.

Vantar að komast yfir sambærilegt tæki, en nenni ekki að þræða allar verslanirnar að leita og yfirleitt er vonlaust að reyna að ná sambandi við þær í gegnum síma :p


Kveðja,
747