Var að glápa á Equilibrium um daginn og fór aðeins að hugsa, Hvort finnst ykkur betri Equilibrium eða Matrix.

Persónulega finnst mér Matrix mjög góð, án ef ein af betri myndum sem gerð hefur verið en það er einhver fílingur sem mig finnst vanta í Matrix sem er í Equilibrium.

Náttúrulega eru bardagaatriðin algerar andstæður í þessum myndum, Í Equilibrium er sett út á hraðann en Matrix setur út á akkúrat andstæðuna.

Síðan finnst mér eins og Equilibrium sé einhvernvegin nær mér heldur en Matrix.

Bara svona smá pælingar og reyna að koma á stað smá umræðu.

kv Dannixx