Courtney Cox-Arquette er alveg frábær í sínu hlutverki í þessari mynd.
Nokkrir krimmar koma saman til að sýna atriði á spilavíti og svo ræna spilavítið. Þeir dulbúa sig allir sem Elvis. Ég vil ekki segja of mikið frá myndinni, en get sagt það að nokkuð kemur uppá, og eitt leiðir af öðru og maður getur ekki annað en dáðst að plottinu í þessari mynd.
Ræningi rænir ræningja og svo kemur þriðji ræninginn og rænir og plata hina tvo. ekki slæmt.

Sá myndina fyrir rúmlega hálfu ári síðan og mér fannst hún mjög góð, var að horfa á hana í annað sinn fyrir 3 vikum síðan og fannst betri þá en í fyrra skiptið. Geðveik tölvugrafík í upphafi myndarinnar(sporðdrekinn).

Ég gef myndinni 4 af 5 mögulegum,

Þið ættuð öll að skella ykkur á þessa mynd.